STEM Námsefni

STEM Ísland hlaut styrk úr Þróunarsjóði námsgagna til að þróa STEM námsefni sem styður við skapandi, verklega og rannsóknarmiðaða kennslu. Námsefnið byggir á raunverulegum efnivið, opnum leiðum og faglegu svigrúmi kennara, og er unnið út frá efnivið, tækjum og tólum úr tækjasafni STEM Húsavík.

STEM námsefnið er hannað með ólíkar áherslur eftir skólastigum:

Á leikskólastigi er áhersla lögð á opinn STEM leik, þar sem börn kanna, prófa og uppgötva með raunverulegum efnivið, studd af opnum spurningum og athugunum kennara.
Á grunnskólastigi er námsefnið byggt upp með skýrum markmiðum og undirliggjandi ramma, þar sem nemendur vinna eftir þekktum ferlum, svo sem verkfræðiferli, vísindalegri aðferð og rannsóknarmiðuðu námi.

Námseiningarnar byggja á blöndu af reynslumiðuðu námi (experiential education) og leitarnámi (inquiry-based learning), þar sem nemendur kanna, prófa og vinna markvisst með STEM efnivið. Í gegnum skipulagt ferli þróa þeir bæði kjarnafærni í STEM greinum og lykilfærni 21. aldar, svo sem lausn vandamála, samvinnu, samskipti, seiglu og sköpunargáfu.

Kennslufræðin byggir á hugsmíðahyggju (constructivist theory), þar sem nemendur byggja nýja þekkingu á fyrri reynslu, fá að spyrja spurninga, prófa hugmyndir og móta eigin skilning innan skýrs faglegs ramma.

Kennarinn gegnir lykilhlutverki sem leiðbeinandi í ferlinu og styður samtal, rökstuðning, ígrundun og samvinnu, á sama tíma og haldið er utan um markmið og ramma námsins.

Hægt er að hlaða niður PDF af hverri námseiningu.

Leikskólastig

Yngsta stig

Miðstig

Unglingastig