STEM Ísland er leiðandi þróunar- og samstarfsvettvangur fyrir eflingu STEM menntunar á Íslandi.
Stofnað 2023 byggir það á alþjóðlegri aðferðafræði STEM Learning Ecosystems, með áherslu á samhæfingu, samstarf og uppbyggingu STEM námsvistkerfa.

STEM Learning Ecosystems aðferðafræðin byggir á því að tengja saman skóla, samfélög, háskóla, atvinnulíf, stofnanir og aðra hagaðila í kringum sameiginlega framtíðarsýn: að efla áhuga, þátttöku og læsi á sviði vísinda, tækni, verkfræði, stærðfræði og skapandi lausnaleitar.

Með vistkerfisnálguninni er lögð áhersla á að nám eigi sér ekki aðeins stað innan hefðbundinna skólastofnana, heldur einnig í samfélaginu, í náttúrunni, í fjölskyldum, á vinnustöðum og í gegnum raunveruleg viðfangsefni.

Markmið STEM Ísland er að styðja við samhæfingu, þekkingarmiðlun og þróun aðgerða sem efla STEM menntun, STEM-læsi og færni fyrir framtíðina, með sérstakri áherslu á samstarf, inngildingu, nýsköpun og samfélagslega þátttöku.

Teymi STEM Íslands

  • Huld Hafliðadóttir

    STOFNANDI

    Önnur af stofnendum STEM Íslands. Frumkvöðull og driffjöður í eflingu samfélagsmiðaðs STEM náms á Íslandi með áherslu á jöfn tækifæri, nýsköpun og stuðning við kennara. Forstöðukona STEM Húsavík.

  • Martin Swift

    LÆRT SAMFÉLAG

    Verkefnastjóri hjá VoN og Menntavísindasviði HÍ. Leiðandi í eflingu STEM menntunar á Íslandi. Situr í stjórn SamSTEM. Með alþjóðlega reynslu og sýn tengir hann íslenskt skólaumhverfi við nýjustu aðferðir og þróun í STEM menntun.

  • Guðrún Matthildur

    ALHEIMUR VÍSINDASETUR

    Líffræðingur og frumkvöðull með brennandi áhuga á nýsköpun, málefnum barna og STEM menntun á Íslandi. Vinnur að því að opna gagnvirt vísindasetur á Íslandi.

  • Sigurjón Sveinsson

    STJÓRNARMAÐUR

    Lögfræðingur og ráðgjafi. Hefur setið í stjórn STEM Íslands frá upphafi. Styður starfsemina með faglegri yfirsýn, stefnumótun og sterkum bakhjörlum.

  • Signý Óskarsdóttir

    STEAM BORGARBYGGÐ

    Stofnandi og framkvæmdastjóri Creatrix og doktorsnemi í menntavísindum. Hún hefur starfað sem stjórnandi og kennari á þremur skólastigum og var leiðandi í innleiðingu STEAM í námskrá Menntaskóla Borgarfjarðar. Forstöðukona STEAM Borgarbyggð.

STEM Ísland vinnur í nánu samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og sem hluti af öflugu teymi Nýmenntar.

Upphafið

STEM Ísland var stofnað í janúar 2023 af Huld Hafliðdóttur, frumkvöðli og verkefnastjóra og Bridget Burger Fulbright sérfræðingi í STEM menntun í kjölfar pilot verkefnisins STEM Húsavík.

STEM Ísland er regnhlífarstofnun fyrir samfélagsmiðuð STEM og STEAM námsvistkerfi á Íslandi.

Hafðu samband!

Viltu vinna með okkur?

Hefurðu áhuga á að fá STEM námsvistkerfi í samfélagið þitt?

Hafðu samband!

Við hlökkum til að heyra frá þér!