Saman um framtíð menntunar

Í heimi hraðra tæknibreytinga, nýrra krafna á vinnumarkaði og stöðugra samfélagslegra umbreytinga þurfum við að hugsa menntun upp á nýtt. Kennarar geta ekki staðið einir - menntun framtíðarinnar er verkefni samfélagsins alls.

Það er einmitt kjarninn í STEM námsvistkerfunum (e. STEM Learning Ecosystems) að tengja saman skóla, fjölskyldur, atvinnulíf, háskóla og samfélög sem sameinast um sameiginlega framtíðarsýn: að efla börn og ungmenni og byggja upp færni til framtíðar. STEM námsvistkerfin eru verkfæri fyrir samfélagsþróun, færniuppbyggingu og framtíð landsbyggðarinnar.

Á Íslandi eru nú tvö slík vistkerfi:

STEM Húsavík, fyrsta vistkerfið á Íslandi (innleitt 2022), og

STEAM Borgarbyggð (innleitt 2024), sem nýverið deildi innblæstri frá starfamessu í Borgarfirði (sjá reel hér að neðan).

Í vetur munum við tengja þessi vistkerfi saman og skapa reynslubrú milli svæða –þar sem lærdómur, lausnir og samstarf flæða á milli samfélaga. Þannig styrkjum við landsbyggðina, nýtum krafta hennar og byggjum upp þá færni sem Ísland þarf á að halda til framtíðar.

Þessi vistkerfi eru hluti af alþjóðlegu neti yfir 150 svæðisbundinna vistkerfa sem þróuð hafa verið í samstarfi við TIES Teaching Institute for Excellence in STEM og STEM Learning Ecosystems Community of Practice.

Reynslan sýnir að þegar samfélagið allt tekur höndum saman um menntun; þegar kennarar fá stuðning, foreldrar eru upplýstir og beinir þátttakendur og atvinnulíf verður virkur vettvangur, þá eykst áhugi, hæfni og trú barna á eigin getu.

Við hvetjum fleiri sveitarfélög, skóla og samfélög til að taka þátt í þessari framtíðarsýn með okkur.

Við getum byggt upp menntun sem er lifandi, samstillt og tengd raunverulegum áskorunum þar sem öll börn fá tækifæri til að blómstra.

Framtíðin kallar. Svarið okkar er samvinna. Ef vistkerfisnálgunin kallar á þig og þitt samfélag - ekki hika við að hafa samband! Saman erum við sterkari

Huld Hafliðadóttir

Samfélagsfrumkvöðull og stofnandi STEM Ísland

Previous
Previous

Umsögn STEM Íslands

Next
Next

10 ástæður þess að vinna saman!