STEM Ísland er meðal undirritaðra aðila sameiginlegrar yfirlýsingar evrópskra Newton-samstarfsaðila, þar sem kallað er eftir markvissum aðgerðum til að efla verklega STEM menntun og auknu alþjóðlegu samstarfi.
„Við ætlum ekki að bíða eftir næstu PISA-niðurstöðum til að bregðast við.“ Þetta eru meginskilaboð sameiginlegrar yfirlýsingar evrópskra samstarfsaðila Newton, sem mótuð var á Newton Partner Summit í Róm í september 2026. STEM Ísland er meðal undirritaðra aðila yfirlýsingarinnar, þar sem kallað er eftir auknu samstarfi og markvissum aðgerðum til að efla verklega STEM menntun í Evrópu.
Yfirlýsingin ber yfirskriftina We Won't Wait for the Next PISA Report to Act og byggir á sameiginlegum áhyggjum af þróun námsárangurs og þeim áskorunum sem menntakerfi Evrópu standa frammi fyrir. Þar er lögð áhersla á að öflug STEM menntun sé ekki aðeins menntamál, heldur mikilvæg forsenda nýsköpunar, tækniframfara og samkeppnishæfni samfélaga.
Byggjum á því sem þegar hefur verið þróað
Ein meginafstaða yfirlýsingarinnar er að ekki þurfi að byrja frá grunni. Víða í Evrópu hafa kennarar, vísindafólk og samtök þróað fjölbreyttar leiðir til að efla verklega STEM menntun, en oft hefur sú vinna farið fram án nægilegrar samhæfingar og samstarfs.
Newton-fyrirkomulagið er ein þeirra lausna sem byggja á áralangri reynslu. Það á rætur að rekja til Noregs og byggir á sérhæfðum kennslurýmum, gæðatryggðum námseiningum og samstarfi skóla, sveitarfélaga og atvinnulífs. Nemendur fá þar tækifæri til að rannsaka, gera tilraunir, vinna saman og takast á við raunveruleg viðfangsefni.
Í dag eru 55 staðbundin Newton-rými í 15 löndum og starfsemin hefur náð til 19 landa með fjölbreyttum útfærslum. Á árinu 2025 voru skráðar tæplega 100.000 nemendaheimsóknir í Newton-rými.
Aukið evrópskt samstarf
Á fundinum í Róm sammæltust samstarfsaðilar um að efla samstarf þvert á landamæri, miðla reynslu og þekkingu og vinna sameiginlega að því að auka aðgengi barna og ungmenna að vandaðri STEM menntun.
Jafnframt var lýst yfir vilja til að kanna stofnun evrópsks samstarfsvettvangs sem gæti tengt saman Newton-samstarfsaðila og önnur samtök sem vinna að eflingu STEM menntunar.
STEM Ísland vinnur að innleiðingu Newton
Þátttaka STEM Íslands í yfirlýsingunni tengist þeirri vinnu sem samtökin hafa þegar hafið við að undirbúa innleiðingu Newton-fyrirkomulagsins á Íslandi.
Markmiðið er að skapa forsendur fyrir uppbyggingu varanlegra STEM menntainnviða sem styðja við skólastarf og auka tækifæri barna og ungmenna til verklegs og fjölbreytts STEM náms, óháð búsetu.
Sú vinna fer saman við áframhaldandi uppbyggingu samfélagsdrifinna STEM námsvistkerfa, þar sem skólar, atvinnulíf, sveitarfélög og aðrir hagaðilar taka höndum saman um að efla STEM menntun í nærsamfélaginu.
Sameiginlega yfirlýsingin undirstrikar mikilvægi þess að nýta þekkingu og reynslu þvert á landamæri, byggja upp öflugt samstarf og færa áhersluna frá umræðu um áskoranir yfir í raunverulegar aðgerðir.
Við þurfum ekki að bíða eftir næstu niðurstöðum til að hefjast handa.
Lesa yfirlýsinguna í heild:
We Won't Wait for the Next PISA Report to Act – Joint Statement, Newton Europe 2026