Huld Hafliðadóttir, stofnandi STEM Íslands, og Guðrún Matthildur Sigurbersdóttir hyggjast hefja vinnu við að aðlaga norska menntalíkanið Newton að íslenskum aðstæðum og koma upp fyrstu kennslurýmunum hér á landi.
Þær sóttu ráðstefnuna Newton Partner Summit í Róm í september og leita nú samstarfs við sveitarfélög, fyrirtæki, fjármálastofnanir og aðra aðila um uppbygginguna.
Mynd: Newton
Að mati Huldar og Guðrúnar Matthildar gæti fyrirkomulagið, sem hefur verið í þróun í tvo áratugi, hentað sérstaklega vel á landsbyggðinni þar sem litlir skólar hafa ekki alltaf aðgang að sérhæfðri aðstöðu, búnaði eða sérfræðiþekkingu. Eitt kennslurými gæti þjónað mörgum skólum og orðið sameiginlegur innviður fyrir heilt svæði.
Í Noregi hafa fyrirtæki, sjóðir og einkaaðilar tekið þátt í uppbyggingu kennslurýmanna samhliða opinberum aðilum. Þær telja að sambærileg nálgun gæti hentað hér á landi.
„STEM menntun er ekki eingöngu verkefni skólanna. Hún snýst líka um framtíðarfærni, atvinnuþróun, nýsköpun og byggðaþróun. Þar er geta samfélaga til að takast á við breytingar lykilatriði. Þess vegna teljum við eðlilegt að fleiri en menntakerfið taki þátt í uppbyggingunni,“ segir Huld.